Fagleg ráðgjöf og samkeppnishæf verð
Fagleg ráðgjöf og samkeppnishæf verð
Okkar leiðarljós er að veita faglega ráðgjöf og góða þjónustu, auk þess að tryggja samkeppnishæf verð.
Við bjóðum okkar viðskiptavinum hugbúnaðarsamninga frá Microsoft og ýmsar lausnir til reksturs tölvukerfa, s.s. öryggislausnir, vöktunarlausnir, afritunarlausnir, lausnir fyrir þjónustuborð og margt, margt fleira.
Lausnir til að auðvelda kerfisrekstur
Við bjóðum fjölmargar lausnir sem auðvelda
rekstur tölvukerfa. Fjöldi stórra fyrirtækja og stofnana hér á
landi eru að nýta sér lausnirnar í dag og styður Premis við
bakið á þeim í notkun og rekstri á þeim.
Office 365
PREMIS er á heimavelli þegar kemur að Office 365. Við höfum mikla
reynslu og þekkingu í Office 365 leyfismálum og getum aðstoðað þig við að velja
hagkvæmustu leiðina. Við höfum innleitt Office 365 hjá á annað hundrað
fyrirtækjum og stofnunum.Okkar áherslur núna liggja í að hjálpa
fyrirtækjum að nýta þá möguleika sem liggja í Office 365 til að auka
framleiðni og auðvelda samskipti.
Fræðslugátt Premis fyrir Office 365
Í fræðslugátt Premis eru á annað þúsund stuttra kennslumyndbanda á ensku um einstök forrit í Office pakkanum, Office 365, og margt fleira. Þannig getur þú veitt þínum starfsmönnum tæki til að eflast í starfi með mjög litlum tilkostnaði. Rétt er að benda á að Fræðslugáttin er innifalin í Þjónustu með yfirýn.
Microsoft hugbúnaðarsamningar
Við höfum reynslumikla sérfræðinga sem geta framkvæmt úttektir á leyfismálum þíns fyrirtækis og veitt ráðgjöf
varðandi bestu leiðir í leyfismálum. Í dag sjáum við um leyfismálin fyrir um 150 fyrirtæki og stofnanir. Premis er með gull vottun frá Microsoft sem Small and Midsize Cloud Solutions Provider.
Hafðu samband og við förum yfir þetta saman.