Helstu kostir
Helstu kostir
Hjá okkur færðu allt í einum pakka á föstu mánaðarlegu gjaldi þar sem hagkvæmni, lipur þjónusta, traustur rekstur og öryggismál eru höfð að leiðarljósi. Hér má sjá helstu kosti Þjónustu með yfirsýn.
Þjónustuborð hefur yfirsýn
Vöktun á vélbúnaði
Allar útstöðvar eru vaktaðar. Fylgst er með öllum þáttum sem gefa okkur skýra mynd af heilbrigði vélarinnar.Ef harður diskur fer að starfa óeðlilega vitum við það á undan notandanum og getum brugðist við áður en skaðinn er skeður.
Reglulegar uppfærslur
Eitt það mikilvægast við rekstur á útstöðvum er að uppfæra þær þegar út koma nýjar öryggisuppfærslur. Það á við um bæði Microsoft stýrikerfi og annan hugbúnað eins og vafra. Í þjónustu með yfirsýn er algjörlega séð um þann þátt.
Afritun á skjölum í tölvum
Langflestir starfsmenn vista öll eða hluta af vinnuskjölum sínum á tölvuna sína. Fyrir þennan hóp væri mjög slæmt að tapa þessum skjölum ef eitthvað kemur fyrir tölvuna eða einhver mistök eru gerð. Engin takmörk eru á fjölda skjala, en hámarksstærð á einu skjali er 50MB.
Vöktuð vírusvörn og vefvörn
Hægt að velja þjónustustig
Í grunninn þarf að greiða
sérstaklega fyrir alla þjónustu sem veitt er af tæknimönnum. En það er hægt að fá bæði fjarþjónustu og þjónustu á staðnum innifalda
Heilbrigt tölvukerfi = framleiðni
Lækkun kostnaðar
Þjónustuþættir og verð
Þjónustuþættir og verð
Hér getur þú séð hvaða þjónustuþættir eru í boði og verð á hverja útstöð. Öll verð eru án vsk.
Þjónustuþættir | Mánaðarverð á útstöð |
---|---|
Vöktun á vélbúnaði, öryggisuppfærslur, aðgangur að þjónustuborði, yfirtökutól, yfirlit yfir allan vél- og hugbúnað, skýrslur um stöðu búnaðar |
490 kr |
Afritun á skjölum |
390 kr |
Vöktuð vírusvörn - BitDefender |
390 kr |
Vöktuð vefvörn |
390 kr |
Bættu við þjónustustigið
Bættu við þjónustustigið
Þjónusta með yfirsýn innifelur ekki vinnu tæknimanna þegar upp koma vandamál sem þarf að leysa. Er sú vinna gjaldfærð sérstaklega á tímagjaldi. Hægt er að bæta við þjónustustigi og bjóðum við upp á 2 stig eins og sést á töflunni hér að neðan. Verðið bætist við þá leið sem þú hefur valið í þjónustu með yfirsýn. Öll verð eru án vsk.
Þjónusta | Mánaðarverð á útstöð |
---|---|
Fjarþjónusta innifalin |
2.500 kr |
Fjarþjónusta og þjónusta á staðnum innifalin |
3.500 kr |
Viltu fá nánari upplýsingar?
Hringdu í mig eða sendu mér tölvupóst. Við finnum okkur svo tíma til að spjalla.
